Nýjustu fréttir
Ég Svavar Sigurðsson hef sterkan grun um að eiturlyfjamafían á Íslandi selji eiturlyf í gegnum lækna...
Eru íslendingar að kaupa upp heiminn með eiturlyfjafé alþjóða eiturlyfjamafíu sem leppar?...
hvað vilt þú gefa fyrir sjálfstæði Íslands í baráttu gegn rússnesku...

Markmið

Framtíð þjóðarinnar er í mikilli hættu ef ekkert er að gert. Margir einstaklingar sem neyta fíkniefna, þroskast á ranghugmyndum. Lifa jafnvel allt sitt líf í stanslausum misskilningi og eða verða geðsjúkir. Þjóðarátak gegn fíkniefnum gengur út frá eftirfarandi staðreyndum.

Í dag er talið að 10-15 % af fíkniefnum sem smyglað er til landsins náist af yfirvöldum, en 85-90% af þessum efnum fari á markaðinn.

Aðal áhersluatriði okkar er að stöðva innflutning á fíkniefnum með öllum tillækum ráðum.

Það verður aldrei metið til fjár, allt það andlega eða fjármagnslega tjón sem þjóðin verður fyrir af völdum fíkniefna.Ekkert, hvorki sjúkdómar, slys eða önnur dauðsföll tekur jafn mörg mannslíf, eins og fíkniefni.  Ástandið í þjóðfélaginu fer dag versnandi, sem kemur m.a fram í auknu ofbeldi og stórauknum afbrotum.

Það vinnst sigur gegn fíkniefnum ef þjóðin stendur öll saman og að þvi vinnum við!