Nýjustu fréttir
Ég Svavar Sigurðsson hef sterkan grun um að eiturlyfjamafían á Íslandi selji eiturlyf í gegnum lækna...
Eru íslendingar að kaupa upp heiminn með eiturlyfjafé alþjóða eiturlyfjamafíu sem leppar?...
hvað vilt þú gefa fyrir sjálfstæði Íslands í baráttu gegn rússnesku...

Um Þjóðarátakið

Barátta Svavars gegn fíkniefna innflutningi hófst 1.september 1994. Þá fór Svavar að kynna sér aðstöðu tolls og lögreglu í baráttunni. í fjölmörgum viðtölum kom í ljós að þá skorti tæki tíma og fé. Hann fór að kaupa fyrir þá tækjabúnað, fyrst GSM og síðan tölvur, myndeftirlitsbúnaði, nætursjónauka og myndavélar um allt land. 

Svavar kom alþingi af stað við að fást við fíkniefnamál þann 10.desember 1995 og samþykkt á fíkniefnamálum. Hann hefur haft þau áhrif að lögregla og tollur hafa fengið stórfé frá ríkisvaldinu. Framundan er að það verði settar upp öryggismyndavélar á allar tollhafnir landsins til eftirlits fyrir toll og til öryggis fyrir sjófarandur. Svavar er að vinna í því að neysla fíkniefna verði ólögleg og hefur sína stuðningsmenn í því. Hann hefur stuðlað að kaupum á stórtækjabúnaði fyrir tollgæslu, Fíberscopes, og Iconscan, sjálfur hefur Svavar keypt búnað fyrir 5,7 milljónir, mest myndavélar og mynda- eftirlitsbúnað. 

Í dag hefur Svavar mestan áhuga á fjármálum mafíunnar bæði hjá stórum og litlum aðilum, lágt settum og hátt settum, þar á eftir að koma margt í ljós.

Quisling hinn norski var fyrirmynd þjóðsvikara.
Þeir menn sem sviku þjóð sína heimsstyrjöldinni í 1939-1945 voru quislingar. En það varð alþjóðaheiti yfir þjóðsvikara. Nú vil ég færa þetta heiti yfir á þá sem starfa fyrir mafíuna á Íslandi, en þeir virðast vera fölmargir bæði smáir og stórir bæði lágsettir og hásettir það er ætlun mín að afhjúpa þá.



Ég fékk köllun
- segir Svavar Sigurðsson sem berst við fíkniefnadjöfulinn  (Viðtal við Svavar)

Svavar Sigurðsson ákvað það 58 ára gamall að fylgja eftir köllun Almættisins og heyja baráttu gegn fíkniefnadjöflinum og leggja lögreglu og tollgæslu lið hvað þetta varðar. Svavar fór nýverið á fund Karls Hermannssonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í Keflavík til að kynna fyrir honum nýtt tæki sem hann kallar “Þefarann.”

Gott samband við Guð
“Guð talaði við mig og sagði hvað ég ætti að gera og við erum í góðu sambandi alla daga,” segir Svavar sem skildi við eiginkonu sína og seldi eigur sínar fyrir 9 árum og hefur síðan ferðast um landið og lagt lið í baráttunni við eiturlyf. “Ég er búinn að fara 7 hringi í kringum landið og auðvitað tekið Vestfirði oft með, auk þess eru margar sérstakar ferðir til Akureyrar,” segir hann. Nýja tækið er skynjari sem finnur eiturlyf innanklæða, en hann segir að Karl Hermannsson hafi sýnt tækinu mikinn áhuga og er Svavar að funda með þingmönnum til að reyna að koma því í gegn að tækið verði keypt. Stuðningur Svavars felst í tæknilegri aðstoð sem og fjárhagslegri.

Frjálst Ísland
Helsta baráttumál hans í þessu átaki sínu, er að frelsa Ísland undan eiturlyfjamafíunni, sem hefur náð mikilli fótfestu hérlendis. “Áhrif mafíunnar eru mikil og pólitísk og eiturlyf eru markaðssett með mútum. Ef menn eru ekki sammála mér hvet ég þá til að lesa bókina “Falið vald eiturlyfjakolkrabbans” eftir Jóhannes Björn. Svavar hefur gefið öllum þingmönnum, lögreglustöðvum, Seðlabankanum, Samkeppnisstofun og Skattstofum landsins eintak af bókinni og er sannfærður um að hún hafi verulega hjálpað. En hann telur mikilvægt að vinna hörðum höndum gegn þessari þróun, því annars getum við kvatt sjálfræðið.

Forsetaembættið tímaspursmál
Hugsjón og áræði Svavars fer víða, honum hefur borist bréf frá fíkniefnadeild Hvíta hússins í Washington þar sem deildin samþykkir hann til samstarfs. “Ég get þjónað öðrum löndum líka, andinn minn er það sterkur,” segir hann. Svavar hefur náð ágætum árangri á þessum 9 árum og þar má nefna fíkniefnasamning Sameinuðu þjóðanna um þvætti, leit, hald, upptöku og ávinning af afbrotum sem samþykktur var á Alþingi 19. febrúar 1997, en hann fékk þessa afgreiðslu í afmælisgjöf. Hann kom þessu áleiðis til þingsins með aðstoð frá Svavari Gestsyni, Rannveigu Guðmundsdóttur og Ólafi G. Einarssyni þáverandi forseta Alþingis. Í dag hefur hann mikil og góð samskipti við embættis- og þingmenn sem og bæjarstjóra hringin í kringum landið. “Ég hef mikil áhrif og allt að því meiri völd en ríkisstjórnin og það er bara tímaspursmál hvenær ég verð forseti,” segir Svavar og hlær.  arni@snn.is 


Smelltu hér til að hlusta á viðtal sem tekið var við Svavar ...