Nýjustu fréttir
Ég Svavar Sigurðsson hef sterkan grun um að eiturlyfjamafían á Íslandi selji eiturlyf í gegnum lækna...
Eru íslendingar að kaupa upp heiminn með eiturlyfjafé alþjóða eiturlyfjamafíu sem leppar?...
hvað vilt þú gefa fyrir sjálfstæði Íslands í baráttu gegn rússnesku...

Þjóðarátak gegn fíkniefnum!


Þjóðarátak gegn fíkniefnum er átaksverkefni Svavars Sigurðssonar.

Svavar Sigurðsson hefur fyrir hönd þjóðarinnar... 

  • Keypt tövubúnað myndavél og scanner fyrir tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli.
  • Keypt farsíma fyrir tollgæsluna og fíkniefnalögregluna.
  • Fjármagnað útgáfu og dreifingu á bæklingnum "Fíkniefni, þú og barnið þitt", sem gefin var út í 95,000 eintökum.
  • Þrýst á Ríkisstjórn Íslands, Sveitastjórnir og aðra ráðamenn þjóðarinnar um að nauðsyn sé á aðgerðum vegna aukinnar fíkniefnaneyslu og ofbeldis í þjóðfélaginu.
  • Látið af hendi allar sínar eigur, til þess að standa straum af þeim kostnaði sem þessu hefur fylgt.
  • Sýnt ótrúlega fórnfýsi í þessari baráttu gegn einum mesta bölvaldi aldarinnar.

Þjóðarátak í fíkniefnamálum er mikið þarfaþing, þar sem neysla fíkniefna hefur aukist meðal barna og ungmenna. 
Baráttan fellst m.a. í því að útbúa bæklinga sem aðstoða foreldra við að öðlast frekari skilning um forvarnir og baráttuna gegn eitrinu.

Framtíð þjóðarinnar er í mikilli hættu ef ekkert er að gert. Margir einstaklingar sem neyta fíkniefna, þroskast á ranghugmynum. Lifa jafnvel allt sitt líf í stanslausum misskilningi og eða verða geðsjúkir.

Í dag er talið að 10-15% af fíkniefnum sem smyglað er til landsins náist af yfirvöldum, en 85-90% af þessum efnum fari á markaðinn. 

Aðal áhersluatriði okkar er að stöðva innflutning á fíkniefnum með öllum tiltækum ráðum. 

Það verður aldrei metið til fjár, allt það andlega eða fjármagnslega tjón sem þjóðin verður fyrir af völdum fíkniefna.
Ekkert, hvorki sjúkdómar, slys eða önnur dauðsföll tekur jafn mörg mannslíf, eins og fíkniefni.
Ástandið í þjóðfélaginu fer dag versnandi, sem kemur m.a. fram í auknu ofbeldi og stórauknum afbrotum.
Með viðræðum við Elías Kristjánsson löggæslumann fíkniefnadeildarinnar er ljóst að fíkniefnadeildirnar skortir tilfinnanlega ýmis tæki til viðbótar eins og myndavélar, tölvubúnað og annað þess háttar.

Það vinnst sigur gegn fíkniefnum ef þjóðin stendur öll saman, og að því vinnum við. Hjálpaðu okkur í baráttunni.

Eins og sést er í mikið ráðist og þurfum við allan þann stuðning sem hægt er að fá hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

Nú höfðum við náð til þín til að geta haldið baráttuni áfram af fullum krafti. Styrki er hægt að leggja inn á reikninga okkar hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar. 


 
Smellið hér til að skoða vefsíðuna vald.org en hún hefur að geyma ýmsar áhugaverðar upplýsingar um eiturlyf og önnur tengd málefni...

Leggðu okkur lið...

Bankanúmer 1101 -26-111557
Kennitala: 190237-2069 
Skýring: Þjóðarátak gegn fíkniefnum


ALLRA ÁTTA ehf  &  Þjóðarátak Svavars Sigurðssonar